Sigurbergur leggur skóna á hilluna

Sigurbergur Sveinsson hefur tekið þá ákvörðun að leggja skóna á hilluna. Þetta kemur fram á facebook síðu handknattleiksdeildar ÍBV. Sigurbergur, eða Beggi eins og við köllum hann, á að baki glæstan feril hér heima jafnt sem erlendis. Hann lék jafnframt 56 landleiki á sínum ferli og skoraði í þeim 65 mörk. Beggi hóf sinn feril […]
Framkvæmdastjóri VSV tjáir sig um Mannlífsslúður og lánamál ritstjórans

Sigurgeir B. Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni gefur lítið fyrir slúðurklausu, í nýjasta tölublaðs Mannlífs, um samstarfið í stjórn Vinnslustöðvarinnar. Binni svarar því til að slúður dæmi sig oftast sjálft og sé sjaldan svaravert. Höfundur þessarar slúðursögu verðskuldi hins vegar athugasemd af sinni hálfu. „Ritstjóri Mannlífs og höfundur klausunnar er Reynir Traustason, sá er áður ritstýrði […]
Brotist inn í 10 geymslur í Áshamri

Þann 25. apríl sl. var lögreglu tilkynnt um að brotist hafi verið inn í einar 10 geymslur í stigaganginum að Áshamri 59. Stolið var m.a. Yato rafmagnsbílabónara, Orvis veiðivöðlum, grænum LOOP veiðijakka, Hardinga veiðistöng og bláum Len Mar sjópoka sem í voru buxur og peysa. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki […]
Heima með Emilíu Borgþórsdóttur

Eyjafréttir og Viska halda áfram með námskeiða/erinda lotuna, Viska – öllum til handa! Næsta fjarnámskeið sem boðið verður upp á er erindið HEIMA. Þar fer Emilía Borgþórsdóttir, iðnhönnuður og sjúkraþjálfari, yfir atriði sem geta bætt heimilið. Fólk eyðir nú meiri tíma en áður heima og sinnir margvíslegum verkefnum hvort sem er við vinnu, heimanám eða […]
Mjaldrasysturnar flytja í Klettsvík í júní

Góðgerðasamtökin SEA LIFE Trust segja í tilkynningu sem send var út rétt í þessu að mjaldrarnir, Litla Hvít og Litla Grá eru nú á lokastigum í undirbúningi fyrir flutning í varanleg heimkynni sín í Klettsvík. Griðarstaðurinn í Klettsvík sem er sá fyrsti sinnar tegundar var byggður fyrir rausnarlegt framlag Merlin Entertainments. Heilsa og velferð hvalanna […]
Sóknarfæri ferðaþjónustunnar á suðurlandi

65 milljónir í nýtt áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum SASS – til stuðnings ferðaþjónustunni á Suðurlandi vegna COVID-19 veirunnar Verkefnið Sóknarfæri ferðaþjónustunnar er nýtt áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Stjórn SASS samþykkti á fundi sínum 22. apríl s.l. að hrinda verkefninu af stað til að styðja við starfandi fyrirtæki í ferðaþjónustu […]
Mikil aðsókn í starf vinnslustjóra hjá VSV

Vinnslustöðin auglýsti starf vinnslustjóra í saltfisk um miðjan aprílmánuð. Tæplega 40 umsóknir bárust í starfið. Umsóknir bárust bæði frá Íslandi og Portúgal en auglýsingin var einnig birt í portúgölskum miðlum. “Á næstu dögum verður farið yfir umsóknir og í kjölfarið rætt við þá umsækjendur sem koma til greina. Ætlunin er að ráðningu verði lokið fyrir […]
Sýnatökur fyrir COVID-19

Á laugardaginn (9. maí) verður aftur boðið upp á sýnatökur í Vestmannaeyjum m.t.t. COVID-19 í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu. Um er að ræða rannsókn þar sem tekin eru blóðsýni og háls- og nefkoksstrok. Tilgangurinn er m.a. að skoða hversu margir hafa tekið smit, þ.e.a.s. myndað mótefni gegn veirunni sem veldur COVID-19. Allir sem vilja […]