Sigurbergur leggur skóna á hilluna

Sigurbergur Sveinsson hefur tekið þá ákvörðun að leggja skóna á hilluna. Þetta kemur fram á facebook síðu handknattleiksdeildar ÍBV. Sigurbergur, eða Beggi eins og við köllum hann, á að baki glæstan feril hér heima jafnt sem erlendis. Hann lék jafnframt 56 landleiki á sínum ferli og skoraði í þeim 65 mörk.

Beggi hóf sinn feril ungur að árum hjá Haukum í Hafnarfirði, þar sem hann lék við góðan orðstír áður en hann hélt í atvinnumennsku erlendis. Fyrstu árin lék hann með Rheinland og Hannover Burgdorf í Þýskalandi en snéri svo aftur í Hauka. Í kjölfarið af dvölinni í heimabænum hélt hann aftur út og lék með Basel í Sviss, HC Erlangen í Þýskalandi og svo Team Tvis Holstebro í Danmörku.

Á þessum tímapunkti ferilsins var komið að tímamótum og skrifaði Sigurbergur undir samning hjá ÍBV haustið 2016 og lék með okkar liði þar til núna í vor.

Á ferli sínum hjá ÍBV vann Beggi 5 titla með klúbbnum, þrennuna 2018, meistara meistaranna 2019 og svo bikarmeistaratitil núna í mars 2020.

Sigurbergur hefur leikið 83 deildarleiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 416 mörk og 10 Evrópuleiki og skoraði 59 mörk í þeim. Hann fangaði fljótt hug og hjörtu stuðningsmanna félagsins og var vinsæll með þeirra. Hann hefur komið sér vel fyrir í Eyjum ásamt konu sinni Birgittu Ósk Valdimarsdóttur, syni þeirra Sveini og svo eiga þau von á sínu öðru barni í næsta mánuði.

Við munum sakna þess að sjá Begga á parketinu en við viljum þakka honum fyrir öll frábæru árin hjá ÍBV. Við óskum honum góðs gengis í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni en hann verður alltaf partur af klúbbnum og mun án efa starfa áfram með okkur á einn eða annan hátt.

Hérna er myndband sem var sett saman með nokkrum tilþrifum Begga fyrir ÍBV: https://youtu.be/CtRBuHOmPQo

 

Nýjustu fréttir

ÍBV tekur á móti Víkingi R. í dag
Áfall fyrir ÍBV – Amalia Frøland með slitið krossband
Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið
Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.