Sýnatökur fyrir COVID-19

 

Á laugardaginn (9. maí) verður aftur boðið upp á sýnatökur í Vestmannaeyjum m.t.t. COVID-19 í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu.

Um er að ræða rannsókn þar sem tekin eru blóðsýni og háls- og nefkoksstrok. Tilgangurinn er m.a. að skoða hversu margir hafa tekið smit, þ.e.a.s. myndað mótefni gegn veirunni sem veldur COVID-19.

Allir sem vilja geta komið. Hægt er að bóka tíma á vefsíðunni bokun.rannsokn.is     (beinn hlekkur: http://bokun.rannsokn.is/q/eyjar)

Ekki verður tekið við tímapöntunum í gegnum síma HSU.

Sýnatökur fara fram við HSU (heilbrigðisstofnunina) við bílastæði sunnan til (bílastæði á milli Sóla og HSU).

Hjörtur Kristjánsson

Umdæmislæknir sóttvarna

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.