Minning: Þórður Magnússon
18. mars, 2021

Það er tímanna tákna að þeim fækkar Eyjamönnunum sem kenndir eru við æskuheimili sín. Þórður á Skansinum er einn þeirra. Í huga lítils peyja í Grænuhlíðinni var ljómi yfir vörubílstjóranum sem bjó á Bakkastígnum. 

Hann átti snemma kranabíl og var á undan sinni samtíð og svo var hann líkari stórstjörnunum sem ég sá í þrjú bíó. Svo flottur með  há kollvik, síða barta og skeggið á efri vörinni persónueinkenni Skansarans. Eðlislægt glottið og hlýleg framkoman gerði það að verkum að gullfyllingin í framtönninni var áberandi. Ég var bara viss um að eingöngu kvikmyndastjörnur væru með svona útlit. Það var því spennandi að fá að sitja í vörubílnum hjá Þórði á Skansinum þegar hann var að vinna í kringum bátana sem pabbi var með á þessum árum.

Leiðir okkar lágu síðan saman þegar ég var verkstjóri hjá Viðlagasjóði við hreinsunina í Eyjum eftir gos og þá var ég gröfumaður hjá honum og Arnari í Ási. Þeir áttu saman fyrirtækið Vinnuvélar og við unnum að hitaveituframkvæmdum í Eyjum. Það var skemmtilegur tími en það þurfti stundum að taka í rassgatið á gröfumanninum sem sleit nær allar vatnslagnir sem lágu ómerktar stystu leið milli húsa.

Ég viðurkenni það nú fyrir góðum vin að ég skemmti mér töluvert yfir því brasi. Ég var kannski að grafa í mjúkum jarðvegi þegar ég fann nett höggið og svo stóð vatnsbunan langt upp í loftið. Þórður og Arnar komu þá hlaupandi með fittings og rörtöng, bölvuðu í hljóði en stungu sér óhikað í skurðinn fullan af vatni og græjuðu rörið. Vinnan var skóli hjá mönnum með verksvit og þekkingu. Seinna þegar ég fór í diplómanám í mannauðsstjórnun í HR kom í ljós a ég var löngu búinn að læra þetta allt saman.

Í sveitinni, á sjónum, í Net hf, hjá Stebba Run, Arnari í Ási og Þórði á Skansinum. Það hafði bara engum dottið í hug að útskrifa mig. Þórður og hans líkir færðu Ísland inn í nútíman með útsjónarsemi, dugnaði og áræði. Í dag fengju þeir hvergi vinnu því þeir áttu engin prófskýrteini sem hægt er að ramma inn og setja upp á vegg. En ómetanleg reynslan og þekkingin er hvergi inn römmuð til skrauts á skrifstofum sem eru fullar af reynslulausu fólki með prófskírteini.

Fyrstu skref Þórðar í vinnuna voru niður Skansinn í Hraðfrystistöðina þar sem hann vann hjá Einari ríka. Það þurfti útsjónarsemi svo líkaminn þyldi álagið og þar unnu allir í haginn fyrir hvern annan. Einfalt atriði eins og að gogga fisk á færiband hafði líka sitt lagið. Þórður kom eitt sinn í aðgerð til mín og þar var ungur maður að gogga fisk á bandið. Að meðfæddri kurteisi Þórðar sagði hann við strákinn. „Þú átt alltaf að láta hausinn á fiskinum snúa svona, því þá þarf Ási ekki að snúa hverjum þungum þorski þegar hann fer inn í´ann“.

Þegar Þórður og vinnufélagar hans í Hraðinu gerðu að hundruðum tonna, 17 klst. á dag 7  daga vikunnar, vertíðina á enda þá skipti þetta sköpum að létta öllum vinnuna því allt var gert á höndum. Þess vegna héldu þeir út, vertíð eftir vertíð með því að hugsa hvert endurtekið handtak til að létta öllum störfin. Við kölluðum hann Skansarann, brosmilda félagann. Ég man aldrei eftir því að hann skipti skapi þó oft væri mikið álag, langur vinnudagur og pressa í gagni. Og alltaf mætti hann ef við gerðum okkur glaðan dag, hann hafði gaman af góðum vinnustaðaanda og þeim móral sem fylgdi slíku spjalli. Skansinn mun standa en Skansarinn er fallinn, glottið og yfirvararskeggið heyrir nú sögunni til.

En minningin um góðan mann lifir. Votta Hrönn og fjölskyldu hjartans samúð.

 

Ásmundur Friðriksson

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 17 Tbl EF Min
17. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst