Bæjarstjórn Vestmannaeyja – Fundur 1566 – Bein útsending

1566. fundur Bæjarstjórnar Vestmannaeyja verður haldinn Í gegnum fjarfundabúnað, 28. janúar 2021 kl. 18:00. Fundinum verður streymt með Teams og geta áhugasamir fylgst með honum með því að smella á tengilinn hér: Bein útsending Ef þú ert ekki með aðgang að Teams þá verður ykkur boðið upp á að tengjast fundinum í gegnum vefinn. Það […]
Haraldur Pálsson ráðinn framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags

Haraldur Pálsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Haraldur er með BA gráðu í hagfræði og BS gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands ásamt því að vera með stýrimannsmenntun frá Tækniskólanum í Reykjavík. Haraldur er meðeigandi E-fasteigna og hefur seinustu ár starfað meðal annars hjá Leitni Ráðgjöf, Marel, Gamma […]
Opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vorúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2021. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileyka atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli […]
Bergey fékk trollið í skrúfuna

Ísfisktogarinn Bergey VE kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum nú skömmu fyrir hádegi með fullfermi að aflokinni sex daga veiðiferð. Skipstjóri var Ragnar Waage Pálmason og ræddi tíðindamaður heimasíðu Síldarvinnslunnar við hann í morgun. „Jú, við erum á landleið með góðan afla en því miður fengum við í aðra skrúfuna í lokaholinu. Það er fúlt að […]
Umfangsmikill loðnuleiðangur

Nú stendur yfir umfangsmikill leiðangur á vegum Hafrannsóknastofnunar með það að markmiði að mæla stærð hrygningarstofns loðnu. Leiðangurinn er framhald mælinga sem voru gerðar austan við land dagana 17.-20. janúar. Með þessu móti er vonast eftir að ná heildarmælingu á stofninum sem leitt getur til nýrrar ráðgjafar. Í leiðangrinum eru alls 8 skip og er […]