Geisli lægstur í blástur og tengingar á ljósleiðara

Ljósleiðara tengingar í dreifbýli voru til umræðu á fundi framkvæmda og hafnarráðs í gær. Það kemur fram að þann 15.mars sl. voru opnuð tilboð í blástur og tengingar ljósleiðara í dreifbýli. Eftirfarandi tilboð bárust: Ljósvirki ehf. kr. 7.872.148 Rafey ehf. kr. 8.905.937 Geisli-Faxi ehf. kr. 1.870.468 Rafal ehf. kr. 4.926.507 Trs ehf. kr. 6.469.700 Prónet ehf. […]
Dóra Björk ráðin hafnarstjóri

Geirlaug Jóhannsdóttir frá Hagvangi mætti á fjarfundi á fund framkvæmda og hafnarráðs sem fram fór í gær. Þar greindi hún frá niðurstöðum á mati á umsækjendum um stöðu hafnarstjóra en 5 umsóknir bárust en umsækjendur voru: Andrés Þorsteinn Sigurðsson, Dóra Björk Gunnarsdóttir, Guðni Grímsson, Sigurður Ingason, Sindri Ólafsson. Fór Geirlaug ítarlega yfir ráðningarferlið og þá […]
Vestmannaeyjar á meðal dýrari svæða í húshitun

Líkt og undanfarin ár, hefur Byggðastofnun fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað á ársgrundvelli, við raforkunotkun og húshitun á sömu fasteigninni, á nokkrum þéttbýlisstöðum og í dreifbýli. Viðmiðunareignin er einbýlishús, 140 m2 að grunnfleti og 350 m3. Almenn raforkunotkun er sú raforka sem er notuð í annað en að hita upp húsnæði, s.s. ljós […]
Útvarp á smiðjudögum GRV

Smiðjudagar á unglingastiginu GRV standa yfir dagana 16. – 18. mars. Margt skemmtilegt er í boði fyrir nemendur sem hafa valið sér smiðjur eftir áhugasviði, eitt af því sem stendur nemendum til boða er útvarps- og fjölmiðlasmiðja. Útvarpið er í gangi frá 10-16 í dag og á morgun á fm 104,7. Dagskrána má sjá hér […]
Strákarnir heimsækja Valsmenn

Strákarnir eru að fara aftur af stað eftir stutt hlé og fara í heimsókn í Origo-höllina og mæta Vals-mönnum. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Valsmenn sitja í 3. sæti með 17 stig en ÍBV í því níunda með 13 stig. Áhugasömum er bent á að miðasala […]