Framkoma RÚV til skammar – Konan niðurbrotin

Ekki hefur farið mikið fyrir Vestmannaeyjum á fréttastofu Ríkisútvarpsins og eiginlega ekki nema þegar eitthvað fer miður hjá okkur. Hefur stundum dottið í hug hvort Eyjamenn borgi minna í útvarpsgjald en aðrir Íslendingar. Get ég nefnt fjölmörg dæmi en sleppi því í bili. Fréttastofan ríkisrekna kemur aldrei á óvart, heldur sínu STRIKI sama á hverju […]

Þjóðhátíð í björtu og góðu veðri

Veðrið virðist ætla að leika við Eyjafólk og gesti þessa þjóðhátíð. Framundan eru norðan og norðvestan áttir, bjart og að mestu þurrt næstu daga. Hefðbundin dagskrá var í gærkvældi, myllan og viti VKB voru vígð með stæl. Jói í Laufási er búinn að slá þakið á Stóra sviðinu og allt tilbúið fyrir setninguna sem hófst […]

Dagskrá Þjóðhátíðar: föstudagur

xr:d:DAFGYiP5E0U:8,j:31756603589,t:22072910

Kl. 14:30 Setning Þjóðhátíðar Þjóðhátíð sett: Þór Vilhjálmsson Hátíðarræða: Víðir Reynisson Lúðrasveit Vestmannaeyja Bjargsig: Helgi Birkis Huginsson Kl. 16:00 Barnadagskrá Gaddari Emmsé Gauti Sprite Zero Klan Kl. 21:00 Kvöldvaka Una og Sara Renee Hljómsveitin Flott Frumflutningur Þjóðhátíðarlagsins: Klara Elias og Kvennakór Vestmannaeyja Guðrún Árný Snorri Vs Ingi – ásamt gestum Kl. 00:00 Brenna á Fjósakletti […]

Verum vakandi

Í tilkynningunni frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum eru gestir Þjóðhátíðar hvattir til að skemmta sér vel, vera vakandi og líta til með náunganum. Tilkynningin er hér: Við vonum að allir muni  skemmta sér vel og njóta þeirra fallegu náttúru sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða. Við viljum hvetja fólk til að sýna samfélagslega ábyrgð á hátíðinni. Verum […]

Alltaf á Þjóðhátíð

Sigríður Inga Kristmannsdóttir, verkefnastjóri hjá ÍBV lætur sig aldrei vanta á þjóðhátíð. Hún situr einnig í Þjóðhátíðarnefnd og ber ábyrgð á allri sölu á hátíðarsvæðinu. Þetta kemur fram í viðtali við k100.is.  „Það er alveg rétt, ég hef aldrei sleppt Þjóðhátíð,“ segir Sigríður Inga með stolti. „Ég er fædd 18. ágúst 1978 þannig ég var […]

Húkkaraballið fór vel fram

Að sögn lögreglu fór allt nokkuð vel fram á fimmtudagskvöldi og nótt Þjóðhátíðarinnar. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins. Einn einstaklingur var handtekinn af lögreglu eftir að hafa veist að lögreglumönnum er þeir hugðust hafa afskipti af honum. Þá komu einnig upp tvö minniháttar fíkniefnamál. Einn einstaklingur gisti fangageymslu að eigin ósk. „Hann átti aðeins […]

Viking Tours keyrir Þjóðhátíðarstrætóinn

Margir sakna bekkjabílanna sem keyrðu síðast árið 2014,  þáverandi lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, Páley Borgþórsdóttir, framfylgdi með þessu löggjöf sem hafði legið fyrir um árabil. Í máli hennar kom meðal annars fram að bekkjarbílar væru ekki ætlaðir til fólksflutninga og þess vegna væri strætisvagn talsvert öruggari kostur. Flestir Vestmannaeyingar eru þó sammála um að meiri sjarmi […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.