Sjóhreinsivél tekin í gagnið

Sjóhreinsivél Vinnslustöðvarinnar var tengd og tekin í gagnið fyrir helgi. Samskonar græja verður ræst hjá Ísfélaginu núna eftir helgina. Willum Andersen, tæknilegur framkvæmdastjóri VSV, og Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs VSV, skáluðu í fyrstu sopunum og mæltu mjög með þessum hreinsaða sjó til drykkjar, segir í umfjöllun á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar. Frábærlega gott vatn Framkvæmdastjóri VSV, Sigurgeir B. […]

Karlarnir í fjögurra liða úrslit

Eftir heldur brokkgenga byrjun ÍBV eftir jólafrí, bæði í meistaraflokki karla og kvenna í Olísdeildinni náðu karlarnir góðum spretti í dag. Eru komnir í undanúrslit í bikarnum eftir sjö marka sigur á Aftureldingu á heimavelli, 34:27. Staðan í hálfleik var 15:14. Þar með eru Eyjamenn komnir í fjögurra liða úrslit bikarsins sem fer fram í […]

Allt undir í dag

Eyja 3L2A9829

ÍBV og Afturelding mætast í átta liða úrslitum Poweraid-bikarsins í handbolta í dag. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en í boði er sæti í undanúrslitum bikarsins í Laugardalshöll. Fyrri leik liðana í vetur lauk með jafntefli og því má búast við hörku leik í dag. ÍBV ætlar að standa fyrir upphitun fyrir leik. […]

Bikarslagur í Eyjum

DSC_4953

8-liða úrslit bikarkeppni karla hefjast í dag með tveimur leikjum. Í Vestmannaeyjum taka heimamenn á móti Aftureldingu. Ef gengi þessara liða í deildinni er skoðað má búast við hörku leik því liðin eru hlið við hlið í töflunni. Afturelding í þriðja sæti og Eyjamenn í því fjórða. Flautað verður til leiks klukkan 13.30 í Eyjum […]

Eldgamall og hraustur fjárstofn

Guðni Einarsson ritar: Um 640-650 fullorðnar sauðkindur voru í Vestmannaeyjum þegar eldgosið hófst þann 23. janúar 1973. Af þeim voru um 50 í útigangi í úteyjum, að sögn Sveins Runólfssonar, fyrrverandi landgræðslustjóra. Féð á Heimaey var flutt í Gunnarsholt á Rangárvöllum þar sem því var haldið í einangrun. Fjárstofninn í Vestmannaeyjum var talinn mjög hreinn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.