Andlát: Bergþóra Jónsdóttir (Lilla í Mandal)

(meira…)
Hver er flóttaleið Eyjamanna?

Það var ýmislegt rætt á tíma mínum á Alþingi í síðasta mánuði, en margt miklu fleira sem ég hefði viljað koma á framfæri og koma að en vonandi kemur það síðar. Ég náði þó að halda ræðu um málefni Grindvíkinga sem og þetta fáránlega kvótakerfi, en eftir að tíma mínum á þingi lauk núna í […]
Útgáfuteiti og opnun sýningar

Sunnudaginn 9. júní kl. 13-14, í Sagnheimum, byggðasafni, fagna hjónin Friðþór Vestmann Ingason og Ragnheiður Jónsdóttir útgáfu á nýrri bók sem þau kalla VÍSURNAR HANS PABBA. Í framhaldinu munu þau ásamt fjölskyldu Inga Steins opna sýninguna: Handverk Inga Steins Ólafssonar í gegnum árin hans. Ingi Steinn var annálaður listamaður, vísur og ljóð léku honum á […]
Leggja til 1% hækkun í þorski

Hafrannsóknastofnun ráðleggur 1 % hækkun aflamarks þorsks fiskveiðiárið 2024/2025. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Því hækkar ráðlagður heildarafli úr 211 309 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 213 214 tonn. Gert er ráð fyrir að stærð viðmiðunarstofns þorsks verði svipuð næstu tvö til þrjú ár þegar árgangarnir frá 2020 og 2021 koma að fullu inn í […]
26 iðkendur útskrifast úr akademíum

ÍBV Íþróttafélag hefur starfrækt afreksakademíu í samstarfi við FÍV frá því í ársbyrjun 2011 og íþróttaakademíu í samstarfi við GRV frá því ársbyrjun 2012. Laugardaginn 25. maí útskrifuðust 2 iðkendur úr afreksakademíunni, Andrés Marel Sigurðsson og Kristján Ingi Kjartansson. Þeir stunduðu akademíuna í 4 annir þar sem þeir sóttu 2 tækniæfingar á viku auk bóklegs […]
Memm gefur út sitt fyrsta lag

Vestmanneyska hljómsveitin Memm var að gefa út sitt fyrsta lag sem heitir “Viltu vera memm?“ Horft er til aldamótanna í útsetningu lagsins sem ætti að kítla nostalgíutaugarnar. Lagið er nú komið á allar helstu streymisveitur og má heyra hér að neðan, segir í tilkynningu frá bandinu. Lagið sem er eftir þá Haffa og Helga var […]
Heildartjón nálægt 1,5 milljörðum

Vestmannaeyjabær og HS Veitur hafa sent Vinnslustöðinni og tryggingafélagi fyrirtækisins kröfubréf þar sem farið er fram á að tjónið á vatnslögninni verði að fullu bætt en eins og staðan er í dag er áætlað heildartjón á bilinu 1.380-1.485 m.kr. Þetta kom fram á fundi bæjaráðs Vestmannaeyja í fyrradag. Í fundargerðinni segir einnig að jafnframt sé […]
Einstaklega heppin með fjölskyldu

Sjómannskonan Margrét Sara Laufdal Stefánsdóttir hefur orðið: Aldur? 29 ára. Atvinna? Ég vinn í þjónustukjarnanum á Strandvegi og er nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands en er í fæðingarorlofi eins og er. Fjölskylda? Sambýlismaðurinn minn heitir Birgir Davíð Óskarsson og er fæddur árið 1996. Saman eigum við tvö börn þau Grétar Inga sem er að verða tveggja ára […]
ÍBV mætir ÍR á útivelli

Tveir leikir fara fram í sjöttu umferð Lengjudeildar karla í dag. Í fyrri laik dagsins tekur ÍR á móti ÍBV á ÍR vellinum. Eyjamenn í fimmta sæti deildarinnar með 6 stig en ÍR-ingar eru í níunda sæti með 5 stig. Eyjamenn gerðu jafntefli við Fjölni í síðustu umferð á meðan ÍR fékk skell gegn Þrótti […]