Einstaklega heppin með fjölskyldu
Grétar Ingi, Birgir Davíð, Kolbrún Sara og Margrét Sara.

Sjómannskonan Margrét Sara Laufdal Stefánsdóttir hefur orðið:

Aldur? 29 ára.

Atvinna? Ég vinn í þjónustukjarnanum á Strandvegi og er nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands en er í fæðingarorlofi eins og er.

Fjölskylda? Sambýlismaðurinn minn heitir Birgir Davíð Óskarsson og er fæddur árið 1996. Saman eigum við tvö börn þau Grétar Inga sem er að verða tveggja ára og Kolbrúnu Söru sem er 5 mánaða. 

Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? 4 ár.

Á hvaða skipi er maki þinn? Þórunni Sveins.

Kynnist þið þegar maki er á sjó? Já

Hefur maki þinn alla ykkar tíð verið á sjó? Já hann er búinn að vera á sjó síðan við kynntumst.

Hvernig hefur gengið að samræma sjómennsku og fjölskyldulíf? Það hefur gengið vel hingað til. Ég tel mig hinsvegar vera einstaklega heppna með fjölskyldu og tengdafjölskyldu. Þar sem álagið getur verið mikið að vera sjómannsfrú með tvö lítil börn þá er ómetanlegt að eiga góða að til þess hjálpa til og létta undir þegar þess þarf.

Helstu kostir sjómennskunnar? Ég myndi segja að það væru gæðastundirnar með fjölskyldunni sem við fáum þegar Birgir er í fríi.  

Helstu gallar sjómennskunnar? Fjarveran sem henni fylgir.

Eruð þið með hefð um sjómannahelgina? Já heldur betur. Hefðin hingað til hefur verið sú að ég sé ólétt á sjómannadaginn, sú hefð hefur verið lögð niður í bili!

Eitthvað að lokum? Ef einhver vill ráða Birgi í vinnu í landi þá megið endilega senda á mig línu, nei, nei segi svona.

Nýjustu fréttir

Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Nýjungar og verðlaun á sjávarútvegssýningunni – myndir frá IceFish
Toppliðið heimsækir Hásteinsvöll
Elís Þór framlengir við ÍBV til 2028
Tveir tapaðir mánuðir í upphafi sumars
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.