Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að veita ÍBV íþróttafélagi sérstakt framlag að upphæð 5 milljónir króna vegna tjóns sem félagið varð fyrir í tengslum við tafir á framkvæmdum við Hásteinsvöll og vegna óveðurs sem hafði áhrif á Þjóðhátíð. Málið er framhald af umræðu frá fyrri fundi bæjarráðs þar sem fjallað var um óskir ÍBV um aðstoð […]
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum

Fyrsti loðnufarmur vertíðarinnar barst til Vestmannaeyja í morgun þegar uppsjávarskipið Sigurður VE 15 lagðist að bryggju með ríflega 900 tonna afla. Sigurður hóf veiðar í gær ásamt Heimaey VE, skammt undan Hornafirði. Sigurður fékk um 900 tonn en Heimaey um 800 tonn og er nú að landa á Þórshöfn. „Hrognafyllingin var 12–13 prósent og hrygnuhlutfallið […]
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025

„Tilnefningin Eyjamaður ársins er veitt þeim einstaklingum sem hafa lagt sitt að mörkum og verið áberandi í samfélaginu hér í Eyjum. Tveir einstaklingar hlutu viðurkenninguna í ár, hjónin Hjalti Kristjánsson læknir og Vera Björk Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur, sem eru Eyjafólk ársins að mati ritstjórnar Eyjafrétta,“ sagði Annika Vignisdóttir, aðstoðarritstjóri Eyjafrétta, við afhendingu Fréttapíramídanna föstudaginn 16. janúar […]