Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn - uppfært
Alfsnes 06 24 IMG 5443 2
Álfsnesið við dýpkun við Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Mælingar á dýpi í Landeyjahöfn fyrr í dag leiddu í ljós að aðstæður eru ekki nægilega góðar til siglinga. Því siglir Herjólfur áfram til Þorlákshafnar og fór hann seinni partinn í dag þangað samkvæmt áður útgefinni áætlun. Brottför frá Vestmannaeyjum er kl. 16:00 og brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45.

Ákvörðun um siglingar á morgun, sunnudag, verður tilkynnt síðar í kvöld eða í síðasta lagi kl. 06:00 í fyrramálið, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Hér að neðan gefur að líta nýjustu dýptarmælinguna í Landeyjahöfn og eins og sést á myndinni kom sú mæling ekki nógu vel út – dýpið komið á milli garða niður í 2,3 metra þar sem grynnst er. Sanddæluskipið Álfsnes er komið til Eyja og er þess beðið að það haldi á svæðið til að hefja dýpkun.

Uppfært kl. 21.30

Herjólfur stefnir á að sigla eina ferð til Landeyjahafnar á flóði í fyrramálið. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 08:00 (Áður ferð kl. 07:00). Brottför frá Landeyjahöfn kl. 10:45.

Ef gera þarf breytingu á áætun verður það gefið út um leið og það liggur fyrir. Hvað varðar siglingar fyrir seinnipartinn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00 á morgun. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni, segir í tilkynningu frá skipafélaginu, en Álfsnes er nú komið á svæðið.

Dýptarmæling 7. febrúar 2026.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.