Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Meirihlutinn klofnaði í afgreiðslu málsins
Frá Þjóðhátíð. Fulltrúi Eyjalistans segir að hann geti ekki samþykkt beiðnina þar sem það sé ekki hlutverk bæjarsjóðs að ábyrgjast fjárhagslega velgengni Þjóðhátíðar. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að veita ÍBV íþróttafélagi sérstakt framlag að upphæð 5 milljónir króna vegna tjóns sem félagið varð fyrir í tengslum við tafir á framkvæmdum við Hásteinsvöll og vegna óveðurs sem hafði áhrif á Þjóðhátíð.

Málið er framhald af umræðu frá fyrri fundi bæjarráðs þar sem fjallað var um óskir ÍBV um aðstoð frá Vestmannaeyjabæ. Á fundinum fór sviðsstjóri yfir helstu atriði úr samtölum við forsvarsmenn félagsins og nánari útfærslu á beiðni um fjárhagslega aðkomu bæjarins.

Tillagan var samþykkt með atkvæðum fulltrúa D- og H-lista, en fulltrúi E-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Í bókun frá fulltrúa E-lista kemur fram að hann geti ekki samþykkt beiðnina þar sem það sé ekki hlutverk bæjarsjóðs að ábyrgjast fjárhagslega velgengni Þjóðhátíðar.

Fjármálastjóra Vestmannaeyjabæjar var falið að útbúa viðauka sem lagður verður fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.