Vegna vinds varð að taka niður stóra partýtjaldið sem búið var að reisa á Skipasandi. En goslokanefnd og hennar fólk dó ekki ráðalaust. Nú er búið að koma fyrir stórum trailer frá Eimskipum á Skipasandi, sem hýsa mun hljómsveitir kvöldsins og auk þess skýla gestum, ef einhver blástur verður í kvöld. �??Að hætti Eyjamanna, allt klárt fyrir kvöldið�?? sagði Egill Egilsson, sem staðið hefur í ströngu í dag.