Eló heldur tónleika í Eyjum
Eló var valin bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2025. Mynd/Óskar Pétur

Tónlistarkonan Eló, eða Elísabet Guðnadóttir, býður Eyjafólki á tónleika laugardaginn 28. mars í KFUM & K húsinu við Vestmannabraut 5.

Á tónleikunum mun Eló flytja frumsamin lög, þar á meðal efni sem ekki hefur heyrst áður. Með henni á sviði verða Bergsteinn Sigurðarson, Hjálmar Carl Guðnason, Ívar Andri Klausen og Karl William Sigurðarson Olsen.

Eló var í fyrra útnefnd Bæjarlistamaður Vestmannaeyja og hyggst hún fagna þeim heiðri með tónleikunum um pálmasunnudagshelgina.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. „Það eina sem þarf er að mæta með bros á vör,“ segir í tilkynningu frá Eló.

Tónleikarnir hefjast kl 20:00.

Nýjustu fréttir

Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.