Eló heldur tónleika í Eyjum

Tónlistarkonan Eló, eða Elísabet Guðnadóttir, býður Eyjafólki á tónleika laugardaginn 28. mars í KFUM & K húsinu við Vestmannabraut 5. Á tónleikunum mun Eló flytja frumsamin lög, þar á meðal efni sem ekki hefur heyrst áður. Með henni á sviði verða Bergsteinn Sigurðarson, Hjálmar Carl Guðnason, Ívar Andri Klausen og Karl William Sigurðarson Olsen. Eló […]

Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar

Þórunn Sveinsdóttir VE 401 hefur nú lagt úr höfn í Vestmannaeyjum áleiðis til Færeyja, þar sem skipið verður afhent nýjum eigendum, Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Greint er frá þessu á vef Vinnslustöðvarinnar í dag. Fréttina má lesa hér að neðan. Það voru stór tímamót í útgerðarsögu Vestmannaeyja í dag, sunnudaginn 22. mars 2026, þegar Þórunn Sveinsdóttir […]

Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi

Vestmannaeyjadeild Rauða krossins var með opið hús í Arnardrangi í dag í tilefni af 85 ára afmæli deildarinnar. Fjöldi gesta lagði leið sína á staðinn, þar sem boðið var upp á veitingar og kynningu á starfsemi félagsins. Afmælið markar mikilvæg tímamót í sögu félags sem hefur lengi verið órjúfanlegur hluti af samfélaginu í Eyjum. Í […]

Sveiflur í veðri og ógnar brim

„Norðan 15 til 23 m/s og snjókoma á austanverðu landinu framan af degi, en mun hægari vestanátt og él vestantil. Dregur síðan úr vindi og úrkomu; vestlæg átt 5–15 m/s og él í flestum landshlutum síðdegis. Frost víða 0 til 5 stig. Gengur í austan 15 til 23 m/s á morgun með snjókomu, fyrst á […]

Gul viðvörun – Austanhríð

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðurland, Austfirði og Suðausturland á morgun, mánudag. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi kl. 12:00 og gildir til kl. 17:00. Í viðvörunarorðum fyrir Suðurland segir: Austan 15-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur, sums staðar slydda eða rigning, með vindvhiður að 35-40 m/s undir Eyjafjöllum. Varsamt ferðaveður. Veðurhorfur á […]

Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu

Kristín Klara Óskarsdóttir, leikmaður ÍBV í fótbolta, lék í 5-0 sigri Íslands á Serbíu í lokaleik u-17 ára landsliðs Íslands, í seinni undankeppni EM í Serbíu.  Íslenska liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum, fyrst gegn Frakklandi, 2-0 og síðar gegn Austurríki, 1-0.  Kristín Klara kom inn á í síðari hálfleik í liði Íslands og gerði […]

Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær

Margrét Lára hlaut Fréttapýramídann í ár fyrir framlag sitt til íþrótta. Margrét er ein allra besta fótboltakona sem Ísland hefur alið og á að baka ákaflega glæsilegan feril. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik aðeins 14 ára, fyrsta A-landsleik 16 ára og lék bæði hér á landi og erlendis með frábærum árangri. Lék í sterkustu deildum […]

Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 

Rafvæðing, snjallkerfi og sífellt meiri áhersla á hugbúnað eru að umbreyta bílamarkaðinum. Á síðustu árum hafa ný tæknifyrirtæki haslað sér völl í greininni og líta á bílinn sem meira en farartæki. Eitt þeirra er rafbílaframleiðandinn XPENG sem hefur á skömmum tíma vakið athygli fyrir nýsköpun og tækni.  Á Íslandi sér Bílaumboðið Una um sölu og þjónustu XPENG. Fyrirtækið […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.