Gul viðvörun - Austanhríð
Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðurland, Austfirði og Suðausturland á morgun, mánudag. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi kl. 12:00 og gildir til kl. 17:00.

Í viðvörunarorðum fyrir Suðurland segir: Austan 15-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur, sums staðar slydda eða rigning, með vindvhiður að 35-40 m/s undir Eyjafjöllum. Varsamt ferðaveður.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Norðan 13-20 m/s og snjókoma eða él, en úrkomulítið sunnantil á landinu. Heldur hægari vindur undir kvöld. Frost 2 til 7 stig.

Á miðvikudag:
Norðvestlæg átt, víða 3-10 m/s, en 10-15 við austurströndina. Allvíða líkur á éljum, einkum við ströndina, en bjartviðri sunnanlands. Frost 3 til 10 stig að deginum.

Á fimmtudag:
Gengur í suðaustanhvassviðri með snjókomu eða slyddu og hlýnar í veðri, en síðan hægari vindur með rigningu við suður- og vesturströndina.

Á föstudag:
Suðvestlæg átt og él, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag:
Útlit fyrir suðaustlæga átt með rigningu eða slyddu og hlýnandi veður.
Spá gerð: 22.03.2026 07:55. Gildir til: 29.03.2026 12:00.

Nánar um veðrið hér.

Nýjustu fréttir

Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.