Áætla rúman hálfan milljarð í hagnað
Bæjarstjórn Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í gær samhljóða fjárhagsáætlun fyrir árið 2025. Fram kemur í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum að tekjur séu varlega áætlaðar og ekki gert ráð fyrir að skatttekjur ársins 2025 verði hærri en raunskatttekjur þessa árs.

Rekstrartekjur eru áætlaðar 9.697 m.kr. og rekstrarútgjöld eru áætluð 9.240 m.kr. á árinu 2025. Sem fyrr eru fræðslu- og uppeldismál sá málaflokkur sem tekur mest til sín, en aukin áhersla hefur verið lögð á að efla þennan málaflokk undanfarin ár og svo verður áfram. Enn sem fyrr verður gætt aðhalds í rekstri sveitarfélagsins og hagrætt þar sem við verður komið. Skuldahlutfall samstæðunnar er áætlað 62,7% og skuldaviðmiðið 21,2% á næsta ári.

Rúmur milljarður til framkvæmda

Gert er ráð fyrir 1084 m.kr. til framkvæmda á næsta ári. Stærstu framkvæmdir næsta árs eru nýir búningsklefar við íþróttahúsið, nýtt þil á Gjábakka og gervigras á Hásteinsvöll. Bæjarsjóður mun þar að auki áætla fjármuni í almannavarnarvatnslögn (NSL4).

Áhersla verður áfram á góða þjónustu og traustan rekstur.

Álögum stillt í hóf:

1.  Álagningarprósenta útsvars verður óbreytt á næsta ári eða 14,91%.
2. Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis lækkar í 0,235%. Fasteignaskattur á fyrirtæki lækkar í 1,325%. Með þessari lækkun er verið að mæta hækkun á fasteignamati í Vestmannaeyjum. Um er að ræða lækkun álagningarprósentu fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði í sjötta sinn á sjö árum og í fimmta sinn á atvinnuhúsnæði á sex árum.
3. Gjaldskrárhækkunum er stillt í hóf og tillit tekið til langtímakjarsamninga.

Lykillinn er að saman fari traustur rekstur og góð þjónusta

Fjárhagsstaða Vestmannaeyjabæjar er sterk. Skuldir eru litlar og langt undir viðmiðunarmörkum sveitarstjórnarlaga. Það eru í raun fá, ef nokkur, sveitarfélög sem geta státað af álíka góðri skuldastöðu.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri sagði m.a. í framsögu sinni á bæjarstjórnarfundinum í gær: „Hér liggur fyrir bæjarstjórn mjög metnaðarfull, en jafnframt ábyrg áætlun fyrir árið 2025, þar sem áherslan er á að tryggja okkar innviði og horfa til framtíðar fyrir okkar góða samfélag. Lykillinn er að saman fari traustur rekstur og góð þjónusta. “

Vestmannaeyjabær vill leitast við að veita sem besta þjónustu með þarfir bæjarbúa í huga en jafnframt að gæta aðhalds í rekstri eins og hingað til, segir í tilkynningunni.

Horfa má á upptöku frá fundunum hér.

Nýjustu fréttir

Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Handbolti, loðnukvóti og prófkjör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.