Mikill fjöldi gesta eru nú þegar mættir á þjóðhátíð Vestmannaeyja og í gærkvöldi áætlar lögregla að á sjöunda þúsund manns hafi verið komnir til Eyja og stöðugt hafi bæst við í nótt og morgun. Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. nótt. Sex fíkniefnamál komu upp í gærkvöldi og í nótt, í einu málinu voru haldlögð 8 grömm af nokkuð hreinu amfetamíni. Í hinum málunum var um að ræða minni skammta af kannabis og amfetamíni.