Ný ríkisstjórn er að fæðast í dag og óska ég henni alls góðs, þó svo að ég hafi nú ekki mikla trú á neinum stór afrekum á þessum stutta tíma fram að kosningum. Framsóknarmenn fara mikinn þessa dagana og vilja meina það að það hafi orðið stórkostleg endurnýjun í forystu flokksins, en mér er hins vegar sagt að á bak við nýja formann flokksins, standi enginn annar en Finnur Ingólfsson, sem lengi hefur verið ráðandi afl innan flokksins.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst