Heill og sæll Ögmundur. Ég rita þér þetta bréfkorn sem reiður Eyjamaður og ekki síður sem reiður skattborgari þessa lands. Ég er ekki reiður náttúruöflunum né byrjunarörðugleikum við þessa nýju höfn. Ég er fyrst og fremst reiður yfir þeim vinnubrögðum sem starfsmenn Siglingastofnunar stunda og þeirri lítilsvirðingu sem þeir sýna okkur.