Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Vegagerðarinnar.
Þar segir jafnframt að af þeim sökum sé ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið er að því að fá varahluti erlendis frá.
Áætlað er að viðgerð taki um 10-20 daga og á meðan verður ekki unnt að dýpka höfnina. Herjólfur siglir til Þorlákshafnar þar til annað verður tilkynnt. Hér má finna áætlun Herjólfs. Vegagerðin fylgist náið með stöðunni og mun upplýsa um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir, segir að endingu í tilkynningunni.