Allt gert til að tryggja vatnið!
eyjar-vatnsleidsla.jpg
Vatnslögn lögð til Eyja.

Núna rétt áðan tilkynnti Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra þá ákvörðun sína að Vestmannaeyjabær væri settur á hættustig vegna þess ástands sem skapast hefur við tjónið sem varð á vatnslögninni til Eyja fyrir rúmri viku.

Það kemur auðvitað óþægilega við okkur öll þegar þær aðstæður skapast að flytja þurfi bæinn okkar á hættustig, en því fylgir reyndar líka ákveðið öryggi. Það þýðir að almannavarnayfirvöld fylgjast mjög náið með stöðu mála og viðbragðsáætlanir verða til samræmis við þær aðstæður sem upp kunna að koma. Bestu sérfræðingar hérlendis og erlendis eru komnir að málinu til að tryggja að vatnið haldi áfram að streyma til Eyja.

Leiðslan er að skila okkur fullu vatnsmagni en hún er hins vegar mikið skemmd og því ber okkur að vera búin undir allar sviðsmyndir sem upp geta komið. Bæjarbúar verða að sjálfsögðu upplýstir samstundis ef breyting verður á þessari stöðu og ef þeir þurfa að grípa til einhverra ráðstafana, en svo er ekki á þessu stigi.

Við undirrituð erum í vinnuhópi fyrir hönd bæjarstjórnar í þessu máli og munum starfa með almannavarnayfirvöldum, stjórnvöldum, HS veitum og öðrum sérfræðingum sem að málinu koma til að þessu ástandi megi linna sem allra fyrst.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar
Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.