„Það er allt annað ástand á svartfuglinum nú en í fyrra. Nú er ástandið eðlilegt en það var það ekki í fyrra. Það er mökkur af fugli um allt,“ sagði Valur Andersen, bjargmaður í samtali við Morgunblaðið. Þar kemur einnig fram að Valur hafi stundað eggjatöku í Súlnaskeri, Geirfuglaskeri og Geldungi í mörg ár ásamt fleirum. Í þessum eyjum er 4-5 þúsund eggja varp.