Þjóðhátíðardeginum fagnað - myndir og myndband
17. júní 2025
Félagar úr Leikfélagi Vestmannaeyja voru á torginu í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Þjóðhátíðardeginum var fagnað um allt land í dag en 81 ár eru frá stofnun lýðveldis Íslands. Í Vestmannaeyjum safnaðist fólk saman fyrir skrúðgöngu á Ráðhúströðinni. Gengið var í lögreglufylgd á Vigtartorg þar sem við tók hátíðardagskrá.

Magnús Bragason var með hátíðarræðu dagsins, Anna Ester Óttarsdóttir var fjallkonan og flutti hátíðarljóð. Þá voru tónlistaratriði frá bæjarlistamanni Vestmannaeyja Eló og frá Arnari Júll og Unu Þorvalds að ógleymdri Lúðrasveit Vestmannaeyja. Einnig sungu börn af leikskólanum Kirkjugerði nokkur lög.

Óskar Pétur Friðriksson og Halldór B. Halldórsson fylgdust með í gegnum linsurnar. Myndir og myndband má sjá hér að neðan.

Magnús Bragason var með hátíðarræðu dagsins, Anna Ester Óttarsdóttir var fjallkonan og flutti hátíðarljóð og Hildur Sólveig Sigurðardóttir var kynnir. Mynd/HBH
Play Video

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.