Sögusetur 1627 stóð fyrir dagskrá í Sagnheimum og Safnahúsi á sunnudaginn og minntist þess að 390 ár eru frá því að sjóræningjar réðust á land í Vestmannaeyjum, dagana 16. til 19. júlí 1627. Ræningjarnir tóku 242 íbúa til fanga og fluttu til Alsír en talið er að um 200 manns hafi komist undan og 34 verið drepnir á Heimaey. Góð mæting var í Sagnheimum þar sem félagar úr Leikfélagi Vestmannaeyja lásu leikgerð eftir Sigfús Blöndal í bundnu máli sem hann nefndi Drottninguna í Algeirsborg sem byggir á sögu �?nnu Jasparsdóttur sem var rænt en komst til mikilla metorða á hinum nýjum stað. Á eftir var gjörningur Ragnars Sigurjónssonar og Bréfdúfnafélags Íslands til minningar um þá sem voru drepnir í árásinni.
Anna Jasparsdóttur bjó í Stakkagerði þegar ránið átti sér stað en þar var tvíbýli. �??Hún var hernumin en hennar biðu önnur örlög en flestra þeirra sem voru herteknir. Efnaður maður fékk hana í sinn hlut á þrælatorginu og tók sér sem eiginkonu. Hún fékk mann sinn til þess að leysa föður sinn úr þrældómi og hann komst til Íslands. Anna var fríð sýnum og var kölluð drottningin í Algeirsborg vegna stöðu sinnar og fegurðar. Hún sneri aldrei aftur heim. Á örlögum hennar er ljóðið eða leikgerðin sem hér er frumflutt í Sagnheimum byggð,�?? sagði Guðbjörg Sigurgeirsdóttir sem kynnti dagskrána fyrir hönd Söguseturs 1627 en að því standa auk hennar þau Helga Hallbergsdóttir, Kári Bjarnason, Ragnar �?skarsson, Sigurgeir Jónsson og �?órður Svansson.
Fóru á kostum
Sögusetur 1627 fékk Zindra Frey Ragnarsson í samstarfi við Leikfélag Vestmannaeyja til að sjá um að flytja okkur þennan texta. Zindri Freyr á lof skilið fyrir leikstjórnina og mikill metnaður var lagður í verkið. Leikaranir Telma �?órarinsdóttir og Albert Snær Tórshamar fóru á kostum í sínum hlutverkum. Mikið mæddi á Thelmu sem var á sviðinu allan tímann en hún stóðst raunina og kom textanum mjög vel til skila.
Helga Jónsdóttir og Arnór Hermannsson sem hafa oft komið fram á vegum Söguseturs áttu sinn þátt í gera þetta eftirminnilegt með lögum eftir þau sjálf og aðra sem þau fluttu á milli atriða við texta Jóns �?orsteinssonar píslavotts. �??Textar Jóns hafa aldrei verið gefnir út, en Kári Bjarnason skrifaði þá upp úr íslenskum handritum og njótum við þess nú,�?? sagði Guðbjörg.
Til að undirstrika söguna sem þarna var sögð voru skúlptúrar á sviðinu og víðar um húsið sem �?órður Svansson gerði.
Hafið þökk fyrir
Að því loknu fór fram gjörningur Bréfdúfnafélags Íslands fyrir framan Safnahús en gjörningurinn var til minningar um þá 34 sem voru drepnir í árás sjóræningjanna í Eyjum. Fékk Ragnar 34 krakka í lið með sér sem gerði þetta enn skemmtilegra.
Slepptu þau dúfunum einni og einni í einu og áttu þær að skila sér heim til hans að Brandshúsum 4 í Flóa á 50-60 mínútum.
Sögusetur 1627 hefur unnið mikið verk í að minnast Tyrkjaránsins og koma á framfæri sögu fólksins sem í því lenti. �?að ásamt Zindra Frey, Thelmu, Alberti Snæ og Ragnari á skilið miklar þakkir fyrir framtakið.