Samkvæmt áræðanlegum heimildum Eyjafrétta verða tveir stuðboltar með Árna Johnsen í brekkusöngnum. Þetta eru Eyjamennirnir Jarl Sigurgeirsson og Sæþór Vídó sem báðir spila með hljómsveitinni Tríkot. Árni Johnsen hefur einn séð um brekkusönginn undanfarna áratugi en kallar nú til þá Jarl og Sæþór, sem hafa mikla reynslu af gítarspili og stuði. Brekkusöngur Árna er einn af vinsælustu dagskrárliðum þjóðhátíðarinnar en nú stefnir í eina stærstu þjóðhátíð frá upphafi, og veitir ekkert að hafa þrjá til að stýra hinum gríðarstóra brekkukór.