Árni Stefánsson, handknattleiksþjálfari hefur verið ráðinn til ÍBV. Árni gerir tveggja ára samning við Eyjamenn en hann kemur til með að vera yfirþjálfari yngri flokka, þjálfa 3., 4. og 5. flokk karla og starfa sem forstöðumaður íþróttaakademíu ÍBV og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum sem komið verður á fót í vetur. Árni er þrautreyndur þjálfari, hefur m.a. þjálfað hjá HK og á Akureyri.