Rafstrengjunum spólað á milli skipa
20250626 094107
Nú er unnið að því að koma strengjunum á milli skipa. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Líkt og greint var frá í síðustu viku hefur skipið BB Ocean verið í Eyjum að undirbúa lagningu tveggja nýrra rafstrengja milli lands og Eyja. Í þessari viku kom svo skipið Aura til Vestmannaeyja. Það er skipið sem mun leggja strengina í haf. Þá kom í byrjun vikunnar skipið UML Valentina en það kom með rafstrengina til landsins og nú er unnið að því að koma þeim á milli skipanna. Áætlað er að það geti tekið allt að viku að koma þeim á milli skipa.

Haft er eftir Ein­ari Snorra Ein­ars­syni, for­stöðumanni skrif­stofu for­stjóra Landsnets, í Morg­un­blaðinu í gær að verið sé að horfa til þess að hefja lagn­ingu strengj­anna í byrj­un júlí en streng­irn­ir verða lagðir frá Land­eyja­höfn.

„Þetta á eft­ir að stór­bæta af­hend­ingarör­yggi raf­orku í Vest­manna­eyj­um og einnig auka af­hend­ing­ar­getu sem stuðla mun að upp­bygg­ingu at­vinnu­lífs í Eyj­um til framtíðar,“ seg­ir Ein­ar Snorri og nefn­ir að lagn­ing raf­strengja sé viðkvæm fyr­ir veðurfari, ekki sé hægt að leggja streng­ina nema í til­tölu­lega lygnu veðri og lít­illi öldu­hæð. Því verði að haga segl­um eft­ir vindi þegar að lagn­ing­unni kem­ur. Flutn­ings­geta raf­orku til Vest­manna­eyja eykst veru­lega með til­komu strengj­anna tveggja, en hvor streng­ur ber 60 MVA sem stend­ur fyr­ir mega­volt am­per, en í sam­hengi við spenni vís­ar MVA til nafn­getu spenn­is­ins. Það gef­ur til kynna það há­marks­afl sem spenn­ir­inn þolir án þess að of­hitna eða skemm­ast.

Haf­ist verður handa við lagn­ingu strengj­anna frá Land­eyja­höfn, en að því verki loknu verða streng­irn­ir tengd­ir við tengi­virki bæði í landi og í Eyj­um. Áætlað er að lagn­ingu raf­strengj­anna ljúki um miðjan júlí nk. en gert er ráð fyr­ir verklok­um um mánaðamót­in ág­úst-sept­em­ber, segir í umfjöllun Morgunblaðsins.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta fylgdist með verkefninu í gegnum linsuna.

Aura við komuna til Eyja.
Skipið BB Ocean í Vestmannaeyjahöfn.

Nýjustu fréttir

“Selfies” eru ekki hagsmunagæsla
ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram
Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.