Dagskrá Leyndardóma Suðurlands heldur áfram í dag, fimmtudag en í hádeginu verður boðið upp á Sögu og súpu í Sagnheimum. �?ingmaðurinn Ásmundur Friðriksson mun þar ræða um ferðamennsku og hvernig oft megi á einfaldan og skemmtilegan hátt nýta þau tækifæri og möguleika sem felast í sögu og menningu Eyjanna. Saga og súpa í Sagnheimum hefst klukkan 12:00.
Klukkan 13:00 opnar svo ljósmyndasýning í Ingólfsstofu þar sem ljósmyndir bæði þekktra og óþekktra ljósmyndara á síðustu öld verður varpað á vegg. Klukkan 16:00 verður svo opnun sýningar Kristleifs Magnússonar í Einarsstofu. Sýningin er liður í átaki Listvina Safnahús við að draga fram Vestmannaeyinga sem þekktir eru í sögu Eyjanna fyrir allt annað en listsköpun en sýningin er unnin í samstarfi við fjölskyldu Kristleifs.