Á uppskeruhátíð hestamanna um síðustu helgi var tilkynnt um val ræktunarbús ársins 2008.
Að þessu sinni varð Auðsholtshjáleiga í Ölfusi fyrir valinu en þetta er í fjórða sinn sem búið verður þessa heiðurs aðnjótandi en búið var fyrir valinu 2006, 2003 og 1999. Á árinu voru sýnd 21 hross frá búinu til 1. verðlauna og kom efsti hestur í flokki stóðhesta 7 v. og eldri á Landsmóti frá Auðsholtshjáleigu.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst