Benda Heimdellingum á að hefja þátttöku í nútímastjórnmálum
Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, benda félögum sínum í Heimdalli í Reykjavík á að nú þegar styttist í að árið 2015 renni upp er full ástæða fyrir unga Sjálfstæðismenn í Reykjavík að hefja þátttöku í nútímastjórnmálum. Sá tími þegar svo var litið á að konur af landsbyggðinni væru eftirbátar annarra er löngu liðinn. Nútímastjórnmál eru með þeim hætti að í dag er það tekið sem gefnu að hæfasti einstaklingurinn geti jú einmitt allt eins verið kona af landsbyggðinni.
Eyverjar taka því af heilum hug undir áskorun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum á Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins, um að Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður Suðurlands verði næsti ráðherra flokksins.
Eyverjar benda félögum sínum í Reykjavík góðfúslega á að í Vestmannaeyjum eru kynjahlutföllin meðal bæjarfulltrúa eins jöfn og þau geta orðið. Í öllum tilvikum er um hæfasta fólkið að ræða. Í Reykjavík eru borgarfulltrúar hinsvegar í 75% tilvika karlar. Eyverjum er það til efs að í Reykjavík séu karlar 75% þeirra sem eru hæfir til ábyrgðastarfa fyrir flokkinn. �?ess má einnig geta að það að bjóða fram hæfasta fólkið af báðum kynjum skilaði Sjálfstæðismönnum í Vestmannaeyjum ásættanlegum árangri í seinustu kosningum til sveitarstjórnar.
Stjórn Eyverja, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

ÍBV sigraði botnlið ÍR í Eyjum
Loppumarkaður í Safnahúsinu um helgina
Styttist í að sundlaugin opni
Segjum það sem við getum staðið við
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Framtíðin er í okkar höndum
Flugútboð til Eyja
Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.