Sýningin “Minningar um landslag” á verkum Bjarna Ólafar Magnússonar opnar á morgun, föstudag kl. 18 hjá Gallerí Fold Vínarborg í samstarfi við Art.Passage.Spittelberg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gallerí Fold.
Verkin á sýningunni eru unnin með vaxlitum á pappír í byrjun árs 2025. Listamaðurinn leikur sér bæði með minni og minningar. Landslagið er þekkt minni í íslenskri myndlist og kinkar Bjarni kolli til íslenskra brautryðjenda í myndlist. Þar á meðal Jóhannesar Kjarval og Þórarinns B. Þorlákssonar og til Vestmanneyingsins Sverris Haraldssonar. Í vinnuferlinu færðist listamaðurinn sífellt nær einhverju liðnu. Nostalgían tók völdin og minningar hans af ferðalögum um Ísland í æsku sóttu á huga hans. Bjarni er fyrst og fremst teiknari og með hrynjandi í línubeitingunni dregur hann minningarnar fram. Endurteknar láréttar og lóðréttar línur, stundum línur í sveipum blandast dulúðlegri birtu og litum sem saman mynda órætt en þó svo kunnuglegt landslag – landslag æskunnar.
Bjarni Ólafur Magnússon (1963) er fæddur og alinn upp í Vestmannaeyjum. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1982 og stundaði nám í grunndeild Myndlistar- og handíðaskóla Íslands 1982-83. Árið 1988 hélt hann til Bandaríkjanna þar sem hann lagði stund á myndlistarnám í Kansas City Art Institute árin 1988-1990 og vorið 1990 var hann gestanemandi við málaradeild San Fransico Art Institute. Árin 1991-92 stundaði Bjarni nám við Goldsmiths/University of London.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst