Fjölmargir hafa heimsótt facebooksíðuna 1973 Í bátana og skráð sína sögu. Aðrir heimsækja síðuna til að lesa það sem á henni má finna og skoða myndir frá gosinu. Einn þeirra sem heimsótti síðuna er kvikmyndagerðarmaðurinn Theo Maximilian Goble. Sá heillaðist svo af sögu Vestmannaeyjagossins í heimsókn sinni til Íslands 2010, að hann ákvað að ráðast í gerð heimildamyndar um eldgos á Íslandi. Í myndinni, sem nefnis Living with Lava er fjallað um eldgos í þremur eldfjöllum, Eyjafjallajökli, Kötlu og Eldfelli. Hér að neðan má sjá stutt kynningarstikla úr heimildarmyndinni, sem frumsýnd verður á kvikmyndahátíð í Montreal í Kanada í næsta mánuði.