Rafmagnslaust í Vestmannaeyjum

Rafmagnslaust var í í Eyjum í morgun í um 20 mínútur. “Vestmannaeyjastrengur 3, VM3, leysir út í rimakoti – Rafmagnslaust í Vestmannaeyjum. Verið er að skoða hvað olli útleysingunni.” Segir í tilkynningu frá Landsneti. (meira…)
Listaverk á Heimakletti

Í tengslum við Safnahelgi í Eyjum í haust – og sem einskonar lokapunktur hátíðarhalda í tilefni þess að 50 ár voru liðin frá gosi – var sett upp myndlistaverk sem fólst í að sýna Heimaklett í allskonar ljósi. Og undir hljómaði frumsamin tónlist eftir Júníus Meyvant. Ljósalistin er eftir Örn Ingólfsson. Þetta myndband sem Matthew […]
Álfsnesið við dýpkun

„Álfsnesið er við dýpkun núna og Herjólfur IV er að sigla í Landeyjahöfn.“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar aðspurður um stöðuna á dýpinu og vinnu við dýpkun í og við Landeyjahöfn. Það voru góðir dagar í lok síðasta árs sem ekki voru nýttir til dýpkunar. Hvers vegna var það? Dagarnir milli jóla og nýjárs […]
Georg Eiður – Áramót 2023 og 2024

Árrið 2023 byrjaði með mikilli kuldatíð hér í Eyjum þar sem allt fór á kaf í snjó, og í sjálfu sér hefði ég eiginlega frekar viljað það heldur en þennan klaka sem er hérna núna, en þetta stóð nú stutt yfir. Vertíðin var eins og árið allt, allt fullt af fiski, vantar bara aflaheimildir. Lundinn […]
Að HS Veitur ljúki sínum skyldum hratt og vel

Bæjarráð ræddi á síðasta fundi sínum samskipti milli HS Veitna og Vestmannaeyjabæjar vegna viðbragða við skemmdum á neysluvatnslögninni. Nauðsynlegt er að gera ráðstafanir strax næsta sumar sem byggðar eru á ráðleggingum sérfæðinga til að tryggja lögnina. Ekki fjárhagslega forsvaranleg framkvæmd fyrir fyrirtækið Í bréfi Páls Erland, forstjóra HS Veitna segir m.a. að haustið 2022 hafi […]
Tjaldurinn í Gvendarhúsi

Sigurgeir Jónsson: Tjaldurinn í Gvendarhúsi: Tveir myndarlegir ungar komust á legg þetta sumarið Þeir eru fremur stundvísir, tjaldarnir sem gert hafa sig heimakomna í nágrenninu við okkur í Gvendarhúsi á undanförnum árum. Í fyrra mættu þeir þann 29. mars, á afmælisdaginn hennar Katrínar, en í ár komu þeir degi fyrr, sennilega til að missa ekki […]
Áramót 2023-24

Árið 2023 byrjaði með mikilli kuldatíð hér í Eyjum þar sem allt fór á kaf í snjó, og í sjálfu sér hefði ég eiginlega frekar viljað það heldur en þennan klaka sem er hérna núna, en þetta stóð nú stutt yfir. Vertíðin var eins og árið allt, allt fullt af fiski, vantar bara aflaheimildir. Lundinn […]
Nýárskveðja

Nýja árið heilsar með kulda en fallegu veðri. Það sést vel á fyrsta myndbandi ársins frá Halldóri B. Halldórssyni. (meira…)
Gleðilegt nýtt ár

Vestmannaeyingar kvöddu gamla árið með mikilli skothríð flugelda sem lýstu upp himininn yfir Heimaey allt gamlárskvöldið og langt fram eftir nóttu. Veður var gott, bjart og aðeins gola sem náði að hreinsa loft af reyknum sem fylgdi rakettunum. Brenna var að venju við Hástein með mikilli flugeldasýningu. Þar tók Addi í London þessa skemmtilegu mynd. […]
Gamla árið sprengt upp – myndir

Árið var sprengt upp með miklum hávaða í gærkvöldi. Óskar Pétur Friðriksson, fylgdist með sprengingunum í gegnum linsuna. Hann segir að hann hafi aldrei áður séð annað eins. Veðrið var hægt og bjart þannig að hávaðinn var ótrúlega mikill. Þar sem vindur var með minnsta móti urðu loftgæðin mjög léleg er leið á. Eyjafólk gengur […]