Nú berast ótt og títt fréttir af skemmtikröftum sem munu skemmta Eyjamönnum og gestum þeirra á Þjóðhátíðinni 2010. Nú síðast bárust fréttir þess efnis að búið væri að semja við Björgvin Halldórsson um að koma fram á Brekkusviðinu á föstudagskvöldinu. Björgvin mun syngja á klukkutíma tónleikum fyrir hina stórfenglegu brennu á Fjósakletti.