Klara Einars á Þjóðhátíð
Klara Ads
Ljósmynd/aðsend.

Klara Einars sendi frá sér nýtt lag í síðustu viku “Ef þú þorir” og í morgun var það tilkynnt á hún verður á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í Vestmanneyjum. Á síðustu rúmlega tveimur árum hefur hún sent frá sér átta lög bæði ein og í samvinnu við aðra og í sumar verður hún á fleygiferð um landið og kemur fram á Þjóðhátíð, Kótelettunni á Selfossi, Reykhóladögum, Novafest og Húkkaraballinu um Verslunarmannahelgina og ennþá er að bætast við dagskránna hennar, segir í tilkynningu.

Árið 2025 hófst með krafti hjá Klöru þegar hún var tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum – viðurkenning sem hún lýsir sem óvæntu og ógleymanlegu augnabliki. Í kjölfarið gaf hún út tvo dúetta: VBMM? með Katrínu Myrru í febrúar og Bara ef þú vissir með Ágústi Brynjari í mars, sem báðir fengu mikla spilun á útvarpsstöðvum og streymisveitum. „Síðasta ár var algjör rússíbani, mikil gleði og auðvitað mikil vinna,“ segir Klara. „Ég hlakka mikið til að spila í sumar – og það er fullt af nýju efni á leiðinni.“

Nýjasta lag Klöru Einarsdóttur, Ef þú þorir, kom út síðasta föstudag. Lagið varð til með óvæntum hætti í stúdíóinu þegar hún var að vinna “Bara ef þú vissir” með Ágústi Brynjari og Hákoni Guðna. „Við kláruðum lagið svo snemma að það var tími afgangs – Hákon spilaði fyrir mig beat og ég hoppaði strax á micinn,“ segir Klara. Lagið varð nánast til í einni setu og fjallar um þá spennu sem skapast þegar maður er hrifinn – en bíður eftir að hinn aðilinn þori að taka fyrsta skrefið. „Mér finnst bestu lögin verða til svona – þegar maður er ekki að reyna of mikið.“

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.