Erlingur og Elmar með mikilvæga sigra í þýsku B-deildinni
Samsett mynd.

Feðgarnir Erlingur Richardsson og Elmar Erlingsson fögnuðu báðir sigri með félagsliðum sínum í þýsku B-deildinni í handbolta um helgina. Erlingur stýrði GWD Minden til sigurs gegn Grosswallstadt í dag, en Elmar og félagar hans í Nordhorn-Lingen lögðu Lübeck-Schwartau að velli á föstudagskvöldið.

Minden heimsótti Grosswallstadt og hafði betur, 29–27, eftir spennandi leik. Með sigrinum heldur Minden áfram góðu gengi undir stjórn Erlings. Minden situr nú í 4. sæti deildarinnar með 19 stig. Grosswallstadt er í 11. sæti með níu stig.

Nordhorn-Lingen vann sannfærandi 38–26 sigur þegar liðið tók á móti Lübeck-Schwartau. Nordhorn leiddi með átta mörkum í hálfleik, 20–12.

Elmar kom að tíu mörkum í leiknum. Hann skoraði fjögur mörk og gaf að auki sex stoðsendingar.

Nordhorn-Lingen situr í 8. sæti deildarinnar með 14 stig, á meðan Lübeck-Schwartau er í 3. sæti með 20 stig.

Nýjustu fréttir

Erlingur og Elmar með mikilvæga sigra í þýsku B-deildinni
Vikan gerð upp: Sjóslys, samgöngur og framkvæmdir settu mark sitt á vikuna
Jólasveinarnir fara í keilu á aðfangadag og dansa í kringum pálmatré
Glódís Dúna og liðsfélagar í U17 tryggðu sér sæti á EM
Hafa fundið sig vel í samfélaginu
Skipulagsvinna formlega hafin vegna hafnar við Eiðið
Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.