Vikan gerð upp: Sjóslys, samgöngur og framkvæmdir settu mark sitt á vikuna
Lærdómur liðinnar viku · 22.–28. nóvember 2026
Mynd/HBH
Vestmannaeyjabær í haustlitunum. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Slysið þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk austan við land og þrír skipverjar fórust setti þungt mark á vikuna. Flaggað var í hálfa stöng í Eyjum og samúðarkveðjur bárust frá bænum, fyrirtækjum og félagasamtökum. Björgunarfólki var jafnframt þakkað fyrir störf við erfiðar aðstæður. Samúðarkveðjur úr Eyjum vegna sjóslyssins.

Dýpið hamlaði siglingum

Veður og sjólag höfðu einnig áhrif á samgöngur. Herjólfur þurfti að sigla til Þorlákshafnar eftir að dýpi við Landeyjahöfn varð verulega takmarkað. Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto á að hefja dýpkun þegar aðstæður leyfa. Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn.

Norlandair opnaði fyrir bókanir í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Flogið verður fimm sinnum í viku fram og til baka frá 1. desember til loka febrúar. Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja.

Ný hafnaraðstaða og framkvæmdir á Vigtartorgi

Framkvæmdum við Gjábakkakant er lokið, þótt enn sé beðið eftir ljóskösturum og uppsetningu fendera. Kanturinn getur tekið á móti ekjuflutningaskipum og nýst Herjólfi ef þörf krefur. Ný aðstaða eykur sveigjanleika hafnarinnar.

Smíði 82,8 fermetra útisviðs á Vigtartorgi hófst nýverið og var greint frá þvi í vikunni. Sviðið er ætlað fyrir tónleika og aðra menningarviðburði. Nýtt útisvið rís á Vigtartorgi.

Í fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs kom fram að tveir aðilar hefðu sýnt áhuga á að taka Blátind VE að sér og gera hann upp. Ekki kemur fram í fundargerðinni hverjir þeir eru. Tveir sýna áhuga á að gera Blátind VE upp.

Jólaundirbúningur og viðburðir

Tendrun ljósanna á jólatrénu á Stakkagerðistúni var frestað vegna veðurs og verður þess í stað þriðjudaginn 1. desember. Tendrun jólatrésins frestað.

Fyrstu bekkingar GRV teiknuðu jólamyndir á gjafakort bæjarins og Kiwanisklúbburinn Helgafell styrkti forvarnastarf samfélagslögreglunnar. Fyrstubekkingar myndskreyta jólagjafakort og Kiwanis styrkir forvarnastarf samfélagslögreglunnar.

Skráning í The Puffin Run 2027 fór vel af stað. Um 1.300 keppendur höfðu skráð sig eftir fyrsta daginn. Mikill áhugi á The Puffin Run.

Fréttir úr sjávarútvegi og íþróttum

Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu nær fullfermi í Neskaupstað eftir veiðar á Glettinganesflaki. Skipstjórarnir sögðu ýsu vera farin að ganga á miðin austur af landinu. Góð veiði hjá Vestmannaey og Bergey.

Guðmundur Tómas Sigfússon varð meistari Vöruhúsdeildarinnar í pílukasti. Guðmundur Tómas nýr meistari Vöruhúsdeildarinnar.

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann fyrri vináttuleik sinn við Svíþjóð en tapaði þeim síðari. Sandra Erlingsdóttir skoraði sex mörk í hvorum leik. Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð.

Enn beðið svara

Eyjafréttir bíða enn svara við spurningum sem beint var til kjörinna fulltrúa um upplýsingagjöf vegna ráðningar slökkviliðsstjóra. Kjörnir fulltrúar þurfa að axla ábyrgð.

Þá er enn beðið svara um framtíð sorphirðu í Eyjum. Samningur Terra við Vestmannaeyjabæ rennur út um áramót verði ekki samið um annað. Setja frest á viðræður um sorpþjónustu.

Í dag, sunnudaginn 29. nóvember, er fyrsti sunnudagur í aðventu og fram undan er jólaundirbúningur. Jólablað Eyjafrétta kemur út 17. desember. Þeir sem ætla að auglýsa þar er bent á netfang auglýsingadeildar: auglysingar@eyjafrettir.is.

 

Tryggvi Már Sæmundsson
Ritstjóri Eyjafrétta

Nýjustu fréttir

Vikan gerð upp: Sjóslys, samgöngur og framkvæmdir settu mark sitt á vikuna
Jólasveinarnir fara í keilu á aðfangadag og dansa í kringum pálmatré
Glódís Dúna og liðsfélagar í U17 tryggðu sér sæti á EM
Hafa fundið sig vel í samfélaginu
Skipulagsvinna formlega hafin vegna hafnar við Eiðið
Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Einar Gunnarsson skólastjóri er Eyjamaður mánaðarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.