Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Sorpa Ruslagamur Tms 20250227 142322
Athafnasvæði Terra í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja vill að niðurstaða úr viðræðum við núverandi rekstraraðila sorpþjónustu liggi fyrir eigi síðar en á næsta fundi ráðsins. Samningur Terra við Vestmannaeyjabæ rennur út um áramót verði ekki samið um annað.

Sviðsstjóri fór yfir stöðu sorpmála í Eyjum og vinnu frá síðasta fundi á fundi framkvæmda- og hafnarráðs 28. október. Í bókun ráðsins er lögð rík áhersla á að niðurstaða viðræðnanna liggi fyrir á næsta fundi, enda mikilvægt að tryggja samfellu í þjónustunni og koma í veg fyrir mögulegt þjónusturof.

Terra sagði upp samningnum í sumar

Eins og Eyjafréttir greindu frá í júlí sagði Terra upp þjónustusamningi sínum við Vestmannaeyjabæ með sex mánaða fyrirvara. Uppsögnin var send bænum 29. júní og rennur samningurinn út 31. desember 2026 verði ekki samið um annað. Engar ástæður fyrir uppsögninni voru tilgreindar í uppsagnarbréfinu.

Í kjölfarið fól ráðið sviðsstjóra að meta þrjá valkosti um framtíð þjónustunnar. Þeir voru að bærinn tæki yfir rekstur sorpsvæðisins en byði sorphirðuna út, að sveitarfélagið tæki hvort tveggja yfir eða að bæði rekstur sorpsvæðisins og sorphirðan yrðu boðin út að nýju.

Yfirtaka myndi kalla á verulega fjárfestingu

Í umfjöllun Eyjafrétta 6. október sagði Hannes Kristinn Sigurðsson, formaður framkvæmda- og hafnarráðs, að yfirtaka sveitarfélagsins á rekstrinum myndi kalla á verulega fjárfestingu. Greining á framtíðarfyrirkomulaginu væri enn vinnuskjal og töluverð vinna eftir.

Þá hafði sviðsstjóra verið falið að ræða við núverandi þjónustuaðila til að tryggja áframhaldandi þjónustu og koma í veg fyrir þjónusturof.

Með nýjustu bókuninni leggur ráðið áherslu á að niðurstaða þeirra viðræðna liggi fyrir á næsta fundi. Ekki kemur fram í fundargerðinni hvort rætt sé um framlengingu núverandi samnings eða aðra útfærslu á áframhaldandi þjónustu.

Nýjustu fréttir

Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.