
Terra umhverfisþjónusta hefur sagt upp þjónustusamningi sínum um úrgangsþjónustu fyrir Vestmannaeyjabæ. Uppsögnin var send bænum 29. júní og gildir samkvæmt samningi með sex mánaða fyrirvara. Verði ekki samið um annað rennur samningurinn út 31. desember 2026.
Frá þessu var greint á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja í gær. Í kjölfar uppsagnarinnar hefur ráðinu verið lögð fyrir vinna við að meta hvernig úrgangsþjónustu sveitarfélagsins verði háttað þegar samningnum lýkur.
Ráðið fól sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna ítarlega úttekt á þremur valkostum og leggja fram skýra tillögu á næsta fundi ráðsins.
Fyrsti kosturinn felur í sér að Vestmannaeyjabær taki yfir rekstur sorpsvæðisins en bjóði sorphirðuna út. Annar kosturinn er að sveitarfélagið taki bæði yfir rekstur sorpsvæðisins og sorphirðuna. Þriðji kosturinn er að bæði rekstur sorpsvæðisins og sorphirðan verði boðin út á ný.
Í uppsagnarbréfi Terra kemur fram að þjónustusamningurinn hafi verið undirritaður 9. október 2024 og að uppsögnin sé í samræmi við ákvæði samningsins sem heimilar hvorum samningsaðila um sig að segja honum upp með sex mánaða fyrirvara. Engar ástæður fyrir uppsögninni eru tilgreindar í bréfinu.
Framkvæmda- og hafnarráð mun taka afstöðu til framhalds málsins þegar úttekt sviðsstjóra liggur fyrir.
Á síðustu vikum hafa nokkur mál sem varða úrgangsþjónustu Terra verið til umfjöllunar hjá Vestmannaeyjabæ. Í júní hafnaði framkvæmda- og hafnarráð ósk fyrirtækisins um styttri opnunartíma á móttökustöðinni. Einnig synjaði ráðið tillögu Terra um breytingar á gjaldskrá. Nú liggur fyrir að fyrirtækið hefur sagt upp þjónustusamningi sínum við bæinn.
Þessu tengt: