Hafna ósk Terra um styttri opnunartíma
Sorpa Ruslagamur Tms 20250227 142322
Athafnasvæði Terra í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur hafnað beiðni Terra um að breyta opnunartíma móttökustöðvar fyrirtækisins við Eldfellsveg.

Arngrímur Sverrisson og Daníel Edward Jónsson, starfsmenn Terra, sátu fund ráðsins þegar málið var tekið fyrir. Terra lagði fram tvær tillögur að breytingum á opnunartíma.

Í fyrri tillögunni var lagt til að opið yrði alla virka daga frá klukkan 13 til 17 og um helgar frá klukkan 12 til 16.

Í síðari tillögunni var lagt til að lokað yrði á sunnudögum og miðvikudögum, en opið á laugardögum frá klukkan 11 til 16 og á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum frá klukkan 11 til 17.

Framkvæmda- og hafnarráð hafnaði báðum tillögunum. Í bókun ráðsins segir að breytingarnar myndu leiða til verulegrar röskunar á þjónustu við íbúa og fyrirtæki.

Jafnframt bendir ráðið á að opnunartími móttökustöðvarinnar sé tilgreindur í samningi sveitarfélagsins við Terra og beri því að virða samningsbundin ákvæði.

Nýjustu fréttir

Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.