Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
Sorpa Ruslagamur Tms 20250227 142322
Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Enn er töluverð vinna eftir við að meta framtíðarfyrirkomulag úrgangsþjónustu í Vestmannaeyjum. Hannes Kristinn Sigurðsson, formaður framkvæmda- og hafnarráðs, segir að yfirtaka sveitarfélagsins á rekstrinum myndi kalla á verulega fjárfestingu.

Þetta kemur fram í svari Hannesar við fyrirspurn Eyjafrétta í kjölfar fundar ráðsins 30. september. Þar var farið yfir greiningu á leiðum í úrgangsmálum og sviðsstjóra falið að ræða við núverandi þjónustuaðila til að tryggja áframhaldandi þjónustu og koma í veg fyrir þjónusturof.

Terra sagði upp þjónustusamningi sínum við Vestmannaeyjabæ í sumar. Verði ekki samið um annað rennur samningurinn út 31. desember 2026.

Greiningin enn vinnuskjal

Hannes segir það hafa verið mat ráðsins að greiningin væri fyrst og fremst vinnuskjal og töluverð vinna væri enn eftir. Um umfangsmikið verkefni sé að ræða, sérstaklega ef sveitarfélagið ákveði að taka reksturinn yfir.

„Að mínu mati er það okkar hlutverk að skoða allar raunhæfar leiðir til að bæta þjónustu og lækka kostnað fyrir íbúa sveitarfélagsins, hvort sem það verður gert með nýjum samningi eða yfirtöku á rekstrinum,“ segir Hannes.

Í sumar var sviðsstjóra falið að skoða þrjá valkosti: að bærinn tæki yfir rekstur sorpsvæðisins en byði sorphirðuna út, að bærinn tæki hvort tveggja yfir eða að bæði rekstur sorpsvæðisins og sorphirðan yrðu boðin út að nýju.

Framhaldið skýrist á næsta fundi

Spurður um mögulegt þjónusturof og hversu löng framlenging samningsins gæti orðið, komi til hennar, segir Hannes að það muni ekki liggja fyrir fyrr en á næsta fundi ráðsins.

Nýjustu fréttir

Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.