Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV

Lokahóf 3.–5. flokka ÍBV í fótbolta fóru fram í lok síðustu viku og lokahóf 6. og 7. flokka félagsins fóru fram í lok ágúst. Fótboltasumarið gekk vel hjá yngri flokkum félagsins. Iðkendur tóku þátt í Íslandsmótum, bikarkeppni og hinum ýmsu opnu mótum þar sem allir fengu verkefni við hæfi og gleðin var ríkjandi. ÍBV sendir […]
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun

Foreldrar nemenda við Grunnskóla Vestmannaeyja eru hvattir til að mæta á kynningarfund um þróunarverkefnið Kveikjum neistann á morgun, miðvikudaginn 7. október. Hermundur Sigmundsson, prófessor og hugmyndasmiður verkefnisins, verður með erindi á fundinum þar sem hann mun meðal annars fjalla um hugmyndafræðina að baki verkefninu, hvers vegna ráðist var í það og þær áherslur sem liggja […]
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að gert sé ráð fyrir útgjöldum vegna kaupa á varamótorum fyrir Herjólf í fjárlagafrumvarpi ársins 2027. Fjármagni hafi sérstaklega verið forgangsraðað til kaupanna. Þetta kemur fram í færslu ráðherra á Facebook í dag vegna umræðu um umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis. Eyjafréttir greindu frá því í gær að Herjólfur ohf. […]
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá

Malbikunarframkvæmdir í Vestmannaeyjum eru á dagskrá næstu daga. Samkvæmt áætlun sem birt hefur verið á vef Vestmannaeyjabæjar er unnið við Gjábakkabryggju og svæði á Eiðinu í dag, þriðjudaginn 6. október. Á morgun er röðin komin að Sólhlíð og Kirkjuvegi. Eyjafréttir greindu nýverið frá fyrirhuguðum malbikunarframkvæmdum á vegum bæjarins og hafnarinnar, sem átti að ráðast í […]
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta, hefur valið 18 leikmenn sem koma saman í Póllandi mánudaginn 19. október. Þar mun liðið leika tvo vináttulandsleiki gegn heimakonum. Leikirnir fara fram fimmtudaginn 22. október og laugardaginn 24. október. Þetta er síðasta verkefni hópsins áður en liðið kemur saman á ný í lok nóvember til lokaundirbúnings […]
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu

Enn er töluverð vinna eftir við að meta framtíðarfyrirkomulag úrgangsþjónustu í Vestmannaeyjum. Hannes Kristinn Sigurðsson, formaður framkvæmda- og hafnarráðs, segir að yfirtaka sveitarfélagsins á rekstrinum myndi kalla á verulega fjárfestingu. Þetta kemur fram í svari Hannesar við fyrirspurn Eyjafrétta í kjölfar fundar ráðsins 30. september. Þar var farið yfir greiningu á leiðum í úrgangsmálum og […]
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni

Atvinnu- og mannlífssýningin VestExpo27 verður haldin í Íþróttahöll Vestmannaeyja dagana 1.–2. júlí 2027. Sýningunni er ætlað að kynna fjölbreytt atvinnulíf, þjónustu, framleiðslu, menningu og mannlíf í Eyjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum sýningarinnar, Exposýn ehf. Þar segir að markmiðið sé að vekja jákvæða athygli á samfélaginu í Vestmannaeyjum, starfseminni sem þar fer fram […]