VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Frá GolfExpo-sýningunni á vegum Exposýnar. Fyrirtækið stendur að atvinnu- og mannlífssýningunni VestExpo27, sem verður haldin í Vestmannaeyjum dagana 1.–2. júlí 2027. Ljósmynd/Aðsend.

Atvinnu- og mannlífssýningin VestExpo27 verður haldin í Íþróttahöll Vestmannaeyja dagana 1.–2. júlí 2027. Sýningunni er ætlað að kynna fjölbreytt atvinnulíf, þjónustu, framleiðslu, menningu og mannlíf í Eyjum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum sýningarinnar, Exposýn ehf. Þar segir að markmiðið sé að vekja jákvæða athygli á samfélaginu í Vestmannaeyjum, starfseminni sem þar fer fram og þeim tækifærum sem þar eru til staðar.

Viðbót við dagskrá Goslokavikunnar

Sýningin verður opin bæði heimamönnum og gestum Goslokavikunnar. Að sögn skipuleggjenda er henni ætlað að falla að stemningu hátíðarinnar og auka fjölbreytni dagskrárinnar.

Þátttaka er ætluð fjölbreyttum hópi fyrirtækja og stofnana, meðal annars úr þjónustu, iðnaði, matvælaframleiðslu, sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Rannsóknaraðilar, frumkvöðlar og sprotafyrirtæki eru einnig meðal þeirra sem sýningin er ætluð.

Þá eru veitufyrirtæki, skólar, opinberir þjónustuaðilar, félagasamtök og íþrótta- og menningarfélög hvött til þátttöku.

Sýningarbásar og sala á staðnum

Í tilkynningunni segir að áhersla verði lögð á faglega umgjörð. Íþróttahöllinni verði breytt í sýningarsvæði með sýningarbásum, lýsingu, merkingum og öðrum búnaði.

Sýnendur fá tækifæri til að kynna starfsemi sína, vörur og þjónustu í sérstökum básum. Jafnframt verður þeim heimilt að selja vörur og þjónustu beint á sýningunni.

Skráning hefst í október

Skráning sýnenda og annarra þátttakenda á að hefjast upp úr miðjum október. Samhliða verður vefur verkefnisins, vestexpo.is, opnaður.

Þar verður hægt að nálgast upplýsingar um opnunartíma, stærðir og útfærslur sýningarbása, verð, skráningu og þjónustu við sýnendur. Exposýn ehf. er framkvæmdaraðili og eigandi VestExpo27.

 

Margrét Hildur Ríkharðsdóttir og Björgvin Þór Rúnarsson, eigendur Exposýnar, sem stendur að VestExpo27 í Íþróttahöll Vestmannaeyja dagana 1.–2. júlí 2027. Ljósmynd/Aðsend.

Nýjustu fréttir

VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.