Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Starfsmenn leggja malbik við Gjábakkabryggju í dag. Malbikunarframkvæmdir halda áfram í Sólhlíð og við Kirkjuveg á morgun samkvæmt áætlun bæjarins. Eyjafréttir/Óskar Pétur Friðriksson.

Malbikunarframkvæmdir í Vestmannaeyjum eru á dagskrá næstu daga. Samkvæmt áætlun sem birt hefur verið á vef Vestmannaeyjabæjar er unnið við Gjábakkabryggju og svæði á Eiðinu í dag, þriðjudaginn 6. október. Á morgun er röðin komin að Sólhlíð og Kirkjuvegi.

Eyjafréttir greindu nýverið frá fyrirhuguðum malbikunarframkvæmdum á vegum bæjarins og hafnarinnar, sem átti að ráðast í þegar veður leyfði. Nú hefur bærinn birt nánari framkvæmdaáætlun. Vélarnar komu til Eyja í gær, mánudaginn 5. október.

Áætlunin er eftirfarandi:

  • Þriðjudagur 6. október: Gjábakkabryggja og svæði á Eiðinu.
  • Miðvikudagur 7. október: Sólhlíð og Kirkjuvegur.
  • Mánudagur 12. október: Bílastæði við goslistaverkið, FES-brekka og fleiri verkefni.
  • Þriðjudagur 13. október: Eftirstöðvar og frágangur.

 

Óskar Pétur Friðriksson hefur myndað undirbúning framkvæmdanna og fylgja myndir hans fréttinni.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.