Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Fundur um kveikjum neistann verður haldinn í Barnaskólanum á morgun, miðvikudag

Foreldrar nemenda við Grunnskóla Vestmannaeyja eru hvattir til að mæta á kynningarfund um þróunarverkefnið Kveikjum neistann á morgun, miðvikudaginn 7. október.

Hermundur Sigmundsson, prófessor og hugmyndasmiður verkefnisins, verður með erindi á fundinum þar sem hann mun meðal annars fjalla um hugmyndafræðina að baki verkefninu, hvers vegna ráðist var í það og þær áherslur sem liggja því til grundvallar.

Kveikjum neistann hófst við GRV haustið 2021 og er langtíma þróunar- og rannsóknarverkefni. Markmið þess er meðal annars að bæta líðan og námsárangur nemenda og efla áhugahvöt þeirra. Áhersla er lögð á læsi og lesskilning, stærðfræði, náttúrufræði, hreyfingu og hugarfar nemenda.

Foreldrar eru hvattir til að mæta og kynna sér betur þá vegferð sem skólinn hefur verið á með verkefninu undanfarin ár.

Fundurinn hefst klukkan 16:30 í sal Barnaskólans.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.