Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Eyjólfur Ármannsson. Samsett mynd.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að gert sé ráð fyrir útgjöldum vegna kaupa á varamótorum fyrir Herjólf í fjárlagafrumvarpi ársins 2027. Fjármagni hafi sérstaklega verið forgangsraðað til kaupanna. Þetta kemur fram í færslu ráðherra á Facebook í dag vegna umræðu um umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis.

Eyjafréttir greindu frá því í gær að Herjólfur ohf. hefði óskað eftir 65 milljóna króna fjárveitingu til kaupa á tveimur vararafmótorum. Í umsögn félagsins kom fram að mótorarnir hefðu þegar verið pantaðir en félagið hefði ekki bolmagn til að greiða eftirstöðvar kaupverðsins. Án fjármögnunar ríkisins yrði að falla frá kaupunum.

Ráðherra segir nú að gert sé ráð fyrir þessum útgjöldum í fjárlagafrumvarpinu.

„Til að taka af allan vafa er gert ráð fyrir þessum útgöldum í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. Þar var fjármagni sérstaklega forgangsraðað til að mæta kaupum á varamótorum fyrir ferjuna,“ skrifar Eyjólfur.

„Við það verður staðið“

Ráðherra rifjar upp að hann hafi síðastliðið sumar sagt að tryggja þyrfti sérsmíðaða varamótora svo að staðan sem kom upp í vor endurtæki sig ekki.

„Við það verður staðið,“ segir hann. Eyjólfur lýsir varamótorunum sem ódýrri tryggingu. Kostnaður vegna aðkomu Baldurs í vor hafi hlaupið á hundruðum milljóna króna, en varamótorarnir kosti brot af þeirri fjárhæð og stytti siglingarof vegna sambærilegrar bilunar úr mánuðum í nokkra daga.

Tryggi einnig samgöngur um Breiðafjörð

Ráðherra bendir jafnframt á að málið varði ekki aðeins Vestmannaeyjar. Þegar Baldur var fenginn til Eyja í vor hafi ferjusamgöngur um Breiðafjörð raskast á sama tíma.

Með varamótora til taks dragi úr líkum á að grípa þurfi til Baldurs á ný. Þannig séu ferjusamgöngur bæði til Vestmannaeyja og um Breiðafjörð betur tryggðar.

„Öruggar ferjusamgöngur eru mikilvæg grunnþjónusta og þannig verður á málinu haldið,“ skrifar ráðherra.

 


Fyrri frétt um málið.

Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð

Herjólfur ohf. óskar eftir 65 milljóna króna fjárveitingu til kaupa á tveimur vararafmótorum fyrir ferjuna. Mótorarnir hafa þegar verið pantaðir og er afhending áætluð í byrjun febrúar 2027. Félagið segir hins vegar að verði fjármögnun ekki tryggð af hálfu ríkisins verði að falla frá kaupunum. Þetta kemur fram í umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis […]

Nýjustu fréttir

Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.