Glódís Dúna og liðsfélagar í U17 tryggðu sér sæti á EM
Mynd/ÍBV handbolti

Glódís Dúna Óðinsdóttir, leikmaður ÍBV, og liðsfélagar hennar í íslenska U17 ára landsliði kvenna í handbolta hafa tryggt sér sæti á Evrópumótinu sem fram fer í Svartfjallalandi á næsta ári.

Ísland tryggði sér EM-sætið með fjögurra marka sigri á Færeyjum í gær, 21–17, í undankeppninni sem leikin er í Færeyjum. Íslenska liðið hafði yfirhöndina frá upphafi og leiddi 12–10 í hálfleik.

Áður hafði Ísland unnið stórsigur á Tyrklandi, 32–17. Glódís Dúna lét þar til sín taka og skoraði tvö mörk í leiknum.

Íslenska liðið á einn leik eftir í riðlinum en stelpurnar mæta Ísrael í dag kl. 14:30. EM-sætið er þó þegar tryggt, en Ísrael er án stiga eftir tap gegn Tyrklandi í gær.

U17 ára landslið Íslands. Mynd/HSÍ

Nýjustu fréttir

Glódís Dúna og liðsfélagar í U17 tryggðu sér sæti á EM
Hafa fundið sig vel í samfélaginu
Skipulagsvinna formlega hafin vegna hafnar við Eiðið
Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Einar Gunnarsson skólastjóri er Eyjamaður mánaðarins
Ný vísindagrein um Kveikjum neistann
Ný aðstaða eykur sveigjanleika hafnarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.