Knattspyrnuráð ÍBV hefur boðið markmanninum Eric Dhaira bróðir Abels heitins til landsins til þess að æfa og spila með 2. flokki félagsins og KFS. Undir lok síðasta tímabils kom Abel að máli við stjórnina og langaði að taka bróðir sinn með sér þegar hann kæmi aftur til landsins frá Uganda. �?að var stór draumur Abels að fá bróðir sinn til Íslands með sér og leyfa honum að kynnast landi og þjóð sem og að æfa með 2. flokk ÍBV.
Eftir að Abel lést ákvað knattspyrnuráð ÍBV að bjóða Eric til landsins og dvelja hér út tímabilið. Eric hefur nýlega gert samning við félagsliðið Sona í Uganda og fengum við þá til þess að lána hann út tímabilið svo Eric fái að upplifa draum Abels. Eric sem á nokkra landsleiki með yngri landsliðum Uganda hefur nú fengið leikheimild með KFS og 2. flokki ÍBV. Eric er væntanlegur til Eyja í lok vikunnar.